Þessi viðbót mun sjálfvirkt uppfæra wiki-inn þinn í nýjustu DokuWiki útgáfu. Áður en haldið er áfram ættir þú að lesa [[doku>changes|Breytingasöguna]] til að sjá hvort einhver viðbótar skref þurfi að taka fyrir eða eftir uppfærslu. Til að leyfa sjálfvirka uppfærslu þarf PHP forritið skriftar-réttindi á DokuWiki skrárnar. Viðbótin mun athuga hvort viðeigandi réttindi séu til staðar áður en uppfærslan hefst. Þessi viðbót mun ekki uppfæra neinar innsettar viðbætur eða skapalón. Við mælum með því að þú takir afrit af wiki-inum þínum áður en þú heldur áfram.